Heimilið

Hleðsla

Fyrirtæki

Virkjanasvæði

Um ON

Frétt

·

Feb 1, 2023

Jóhann Ingi og Hrafn Leó til Orku náttúrunnar

Orka náttúrunnar er á fleygiferð í vegferð sinni í orkuskiptum í samgöngum og hefur nú bætt við sig tveimur nýjum starfsmönnum.

Jóhann Ingi Magnússon kemur til að starfa sem sölustjóri fyrirtækja- og einstaklingsmarkaða hjá Orku náttúrunnar þar sem hann mun koma að mótun stefnu og stýra öflugu söluteymi fyrirtækisins. Jóhann Ingi er með MBA gráðu frá Háskóla Íslands en hann kemur frá bifreiðaumboðinu Heklu þar sem hann hefur m.a. starfað við vörumerkja- og sölustýringu á vörumerkjum fyrirtækisins. Jóhann hefur einnig starfað áður hjá Bílabúð Benna við sölu og vörustýringu.

Hrafn Leó Guðjónsson tekur við starfi vörustjóra Orku náttúrunnar. Þar mun hann koma að framþróun þjónustu sem tengist snjallmælum, orkuskiptum í samgöngum og nýjum lausnum. Hrafn Leó er með B.Sc. gráðu í rafmagnstæknifræði frá Háskólanum í Reykjavík en hann kemur frá Orkuveitu Reykjavíkur þar sem hann starfaði sem verkefnastjóri orkuskipta í samgöngum. Hrafn Leó leiddi einnig hugbúnaðar- og ferlaþróun Snjallmælavæðingar Veitna. Áður starfaði hann hjá Securitas sem sölustjóri og yfirmaður vöruþróunar.

Viljum áfram eiga ánægðustu viðskiptavinina
„Okkar markmið er að tryggja það að við munum áfram eiga ánægðustu viðskiptavini á raforkumarkaði. Til þess þurfum við að hafa rétta skipulagið og ráða inn starfsmenn sem koma með reynslu og þekkingu sem nýtist okkur til vaxtar. Orka náttúrunnar hefur verið leiðandi í uppbyggingu hleðsluinnviða frá árinu 2014. Markmið okkar er að veita framúrskarandi þjónustu með öflugum hleðslulausnum þar sem allir geta hlaðið á auðveldan hátt. Við viljum einnig bjóða upp á nýjar lausnir fyrir einstaklinga, húsfélög og fyrirtæki sem einfalda þeim að taka stærri skref í átt að umhverfisvænna lífi. Hrafn Leó og Jóhann eru svo sannarlega öflug viðbót við okkar teymi,“ segir Ingólfur Guðmundsson forstöðumaður sölu- og viðskiptaþróunar ON.

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.

Vertu með á fréttabréfinu okkar

Fáðu nýjustu fréttir, uppfærslur og sértilboð beint í pósthólfið þitt!