Frétt
·
Apr 28, 2025
Sameining hitaveitunnar - áhugavert nýsköpunarverkefni

Eitt af stóru verkefnunum sem unnið er að hjá ON er svokallað blöndunarverkefni. Verkefnið er samvinnuverkefni ON, Veitna og Orkuveitunnar og er leitt af sviði Rannsókna og nýsköpunar hjá Orkuveitunni.
Blöndunarverkefnið snýst um að sameina hitaveitur höfuðborgarsvæðisins en eins og er, eru tvö kerfi í gangi. Það er nefnilega ekki sama vatnið í öllum pípum á höfuðborgarsvæðinu, þau sem búa vestan við Elliðaár eða í Mosfellsbæ fá heita vatnið beint úr lághitasvæðunum í Elliðaárdal, Laugardal og Reykjum/Reykjahlíð þaðan sem vatninu er dælt beint úr borholum og heim til fólks. Þau sem búa á Álftanesi, í Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi og í efri byggðum Reykjavíkur fá hins vegar heim til sín grunnvatn sem hitað er upp með háhitavökva í stórum varmaskiptum í jarðhitavirkjunum Orku náttúrunnar á Hellisheiði og Nesjavöllum.
Ef við gætum blandað saman þessu vatni og sameinað hitaveituna, yrði það algjör bylting í rekstri hennar og auðlindanýtingu.
Þeir Ólafur Jósef Ólafsson, sérfræðingur í blöndunar- og varmastöðvum, og Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri ON, ræddu um blöndunarverkefnið og ávinning þess í nýjasta örhlaðvarpsþætti Orkunnar í náttúrunni.

Fréttir

Vertu með á fréttabréfinu okkar
Fáðu nýjustu fréttir, uppfærslur og sértilboð beint í pósthólfið þitt!