
Við berum ómælda virðingu fyrir náttúrunni
Við höfum innleitt það verklag við allar framkvæmdir á grónu landi að taka upp gróður og nýta hann beint í frágang á framkvæmdastað eða á öðrum röskuðum svæðum.
Landgræðsluflokkur
Á sumrin starfar fríður flokkur ungs fólks við landgræðslu og fegrun umhverfis við virkjanir okkar. Meðal verkefna eru gróðursetning viðigræðlinga, söfnun og dreifing fræslægju og endurheimt á mosaþembum.
Til að endurheimta mosaþembur notum við meðal annars svokallaðan mosahræring sem samanstendur af súrmjólk, vatni og mosa.
Á hverju ári gróðursetjum við um 8.000 tré.