Heimilið

Hleðsla

Fyrirtæki

Virkjanasvæði

Um ON

Frétt

·

Feb 2, 2024

Orka náttúrunnar á UT messunni um helgina

Orka náttúrunnar á UT messunni um helgina

Orka náttúrunnar verður á UTmessunni sem hófst í Hörpu dag. Við hvetjum ykkur eindregið til að líta við og hitta okkar helstu sér­fræðinga­ sem verða í Hörpunni í dag og á morgun og verða þau tilbúin að svara spurningum um allt mögulegt. Í tilefni UTmessunnar birtist eftirfarandi viðtal við okkar eigin Jóhann Inga Magnússon sölustjóra á mbl.is í dag.

Spennandi tímar fram undan með fjölbreyttum lausnum

Orka nátt­úr­unn­ar fagn­ar tíu ára af­mæli þetta árið og hlut­verk okk­ar er að fram­leiða og selja raf­magn, raf­magnið okk­ar kem­ur frá þrem­ur virkj­un­um; Hell­is­heiðar­virkj­un, Nesja­valla­virkj­un og Anda­kíls­ár­virkj­un, og við fram­leiðum um 17% af allri raf­orku hér á landi. Einnig sjá­um við meiri­hluta höfuðborg­ar­svæðis­ins fyr­ir heitu vatni,“ seg­ir Jó­hann Ingi Magnús­son, sölu­stjóri hjá Orku nátt­úr­unn­ar.

Mark­mið fyr­ir­tæk­is­ins er að gæta hags­muna auðlinda lands­ins og viðskipta­vina fyr­ir­tæk­is­ins með sjálf­bærni að leiðarljósi. Þar með styður fyr­ir­tækið við ný­sköp­un, ábyrga nýt­ingu auðlind­ar­inn­ar og flýt­ir fyr­ir orku­skipt­um með minna vist­spori, sam­fé­lag­inu öllu til heilla.

„Þjón­usta við viðskipta­vini er okk­ur afar mik­il­væg og með frá­bæru starfs­fólki ON tryggðum við okk­ur efsta sæti Íslensku ánægju­vog­ar­inn­ar fyr­ir árið 2023 og er þetta fimmta árið í röð sem við hljót­um þann heiður, heiður sem við met­um mik­ils,“ seg­ir Jó­hann og bæt­ir við: „Þá sér­stak­lega í ljósi þess að sam­keppni í sölu á raf­magni og hleðslu­lausn­um er að aukast og fram und­an eru spenn­andi tím­ar og ólík­ar lausn­ir í vinnslu.“

Hvar vilj­um við hlaða raf­bíl­inn?

Orku­skipti í sam­göng­um hafa kallað á nýja nálg­un ON til að selja raf­magn, hvort sem er heima, á vinnustað eða á ferðinni að Jó­hanns sögn. „ON lagði strax mikla áherslu á að styðja við orku­skipt­in og fyrsta hraðhleðslu­stöðin var sett upp af ON fyr­ir tíu árum og árið 2018 „lokuðum“ við hringn­um og sett­um upp 50 kW stöðvar með reglu­legu milli­bili á hring­veg­in­um. Síðan þá hef­ur margt breyst og fjöl­marg­ir aðilar komn­ir á vagn­inn til að drífa áfram orku­skipt­in,“ seg­ir hann.

„Okk­ar sýn er að raf­bíla­eig­end­ur vilji hlaða þar sem þeir stoppa en ekki stoppa til að hlaða eins og hef­ur tíðkast á hefðbundn­um eldsneyt­is­stöðvum. Það sjá­um við vel þar sem til viðbót­ar við hraðhleðslu­netið okk­ar hafa hverfa­hleðslur ON notið mik­illa vin­sælda í hverf­um sveit­ar­fé­laga og á lyk­ilstaðsetn­ing­um þar sem bíl­ar stoppa til lengri tíma.“

Út frá reynslu síðustu tíu ára hjá fyr­ir­tæk­inu hef­ur starfs­fólk ON lagt vinnu í að greina hvar viðskipta­vin­ir þess vilja hlaða og hvaða þjón­ustu þeir vilja sjá á hleðslu­staðsetn­ing­um. „Út frá þessu erum við að þróa nýja nálg­un í upp­bygg­ingu hleðslu­nets okk­ar með því að gera þær fjöl­skyldu­vænni, með gott aðgengi og staðsett­ar þar sem önn­ur afþrey­ing er til staðar,“ seg­ir Jó­hann.

Þjón­usta all­an sól­ar­hring­inn

„Til gam­ans má nefna að sam­kvæmt töl­um úr hleðslu­neti okk­ar frá ár­inu 2023 þá var bíl stungið í sam­band 720 þúsund sinn­um eða tæp­lega tvö þúsund hleðslur á dag sem sýn­ir að hluta um­fang raf­bíla í sam­göng­um. Okk­ur reikn­ast til með nálg­un að raf­magn sem fór í gegn­um okk­ar kerfi sam­svari akstri á bens­ín­bíl í 66 millj­ón­ir km og hafi sparað í út­blæstri 12,2 þúsund tonn í CO2,“ seg­ir Jó­hann.

„Til viðbót­ar við al­menn­ings­hleðslu­net ON er lyk­ill­inn að þægi­leg­um orku­skipt­um að hafa aðgengi að hleðslu á raf­bíl­inn heima og hjá fyr­ir­tækj­um ef kost­ur er. Hleðslu­áskrift ON er heild­stæð lausn í hleðslu raf­bíla þar sem sótt er um áskrift að hleðslu­stöð og með henni tryggj­um við áhyggju­lausa lausn og svör­um all­an sól­ar­hring­inn í sím­ann ef not­end­ur lenda í vand­ræðum.“

Notk­un hleðslu­stöðva eykst hratt

Fyr­ir­tækjalausn ON hef­ur þró­ast í gegn­um árin að þörf­um viðskipta­vina og hjá fyr­ir­tæk­inu eru fjöl­breytt­ar lausn­ir lyk­il­atriði, hvort sem það er til að hlaða raf­bíla starfs­manna, viðskipta­vina eða eig­in bíla. „Við bjóðum upp á hefðbundn­ar hleðslu­lausn­ir (AC) og hraðhleðslu­lausn­ir (DC) eft­ir því sem hent­ar og ef búið er að setja upp stöðvar og þær hafa tengi­mögu­leika inn í kerfi okk­ar þá er hægt að nýta hann áfram,“ seg­ir Jó­hann.

„Með því að vera hluti af ON hleðslu­lausn­um geta fyr­ir­tæki nýtt sér greiðslu­lausn okk­ar sem tæp­lega 44 þúsund not­end­ur hafa aðgang að og birst á hleðslu­korti okk­ar ef óskað er eft­ir því. Við heyr­um frá þeim fyr­ir­tækj­um sem eru í viðskipt­um við okk­ur að notk­un hleðslu­stöðva er að aukast hratt og raf­magns­kostnaður sem því nem­ur, ef hleðslu­stöðvar eru sett­ar á gjald­skrá greiðslumiðlun­ar ON er á ein­fald­an hátt hægt að veita þessa þjón­ustu áfram til starfs­manna og nýta þann tíma sem við erum í vinn­unni til að hlaða raf­hlöðurn­ar. Allt helst þetta í hend­ur til að gera orku­skipti í sam­göng­um þægi­leg.“

Und­ir lok­in hvet­ur Jó­hann fólk ein­dregið til að líta við í básn­um hjá ON á UT­mess­unni þar sem helstu sér­fræðing­ar þeirra verða til­bún­ir að svara spurn­ing­um og spjalla um allt mögu­legt.

Vertu með á fréttabréfinu okkar

Fáðu nýjustu fréttir, uppfærslur og sértilboð beint í pósthólfið þitt!

Vertu með á fréttabréfinu okkar

Fáðu nýjustu fréttir, uppfærslur og sértilboð beint í pósthólfið þitt!

Vertu með á fréttabréfinu okkar

Fáðu nýjustu fréttir, uppfærslur og sértilboð beint í pósthólfið þitt!

Vertu með á fréttabréfinu okkar

Fáðu nýjustu fréttir, uppfærslur og sértilboð beint í pósthólfið þitt!

Vertu með á fréttabréfinu okkar

Fáðu nýjustu fréttir, uppfærslur og sértilboð beint í pósthólfið þitt!