Frétt
·
Oct 9, 2024
Nesjavallavirkjun fór aftur í fulla framleiðslu um klukkan 17 í dag en útleysing varð á öllum vélum í virkjuninni í morgun. Enn er unnið að því að greina ástæður bilunarinnar.
Skerðingum á raforku hjá skerðanlegum notendum sem gripið var til vegna bilunar hefur verið aflétt. Vonast er til að skerðingum á heita vatninu og tilmælum um að spara það verði aflétt í fyrramálið.
Fréttin var uppfærð kl. 21:20.