Heimilið

Hleðsla

Fyrirtæki

Virkjanasvæði

Um ON

Frétt

·

May 21, 2024

Landbúnaðarháskólinn í heimsókn í Hellisheiðarvirkjun

Landbúnaðarháskólinn í heimsókn í Hellisheiðarvirkjun

Orka náttúrunnar leggur ríka áherslu á góðan frágang og landgræðslu á virkjanasvæðum sínum með það markmið að endurheimta landslag og gróður sem líkast því sem var fyrir framkvæmdir. Nemendur í meistaranámi í vistheimt við Landbúnaðarháskóla Íslands kíktu í heimsókn til okkar í Hellisheiðarvirkjun í síðustu viku til að skoða landgræðslusvæðin okkar. Það var gaman að geta sýnt þeim árangur okkar í að endurheimta staðargróður.

Undanfarin ár hefur markvisst verið unnið að endurheimt náttúrulegs gróðurs og umhverfis eftir rask sem fylgdi framkvæmdum við Hellisheiðarvirkjun. Aðferðir á borð við jarðvinnu, fræslægju, mosadreifingu, flutning á torfum, o.fl. hafa skilað góðum árangri.

Við höfum innleitt það verklag, við allar framkvæmdir á grónu landi, að taka upp gróður og nýta hann beint í frágang á framkvæmdastað eða á öðrum röskuðum svæðum. Þetta er oftast gert með stórtækum vinnuvélum en stundum einnig með handafli.

Vertu með á fréttabréfinu okkar

Fáðu nýjustu fréttir, uppfærslur og sértilboð beint í pósthólfið þitt!