Heimilið

Hleðsla

Fyrirtæki

Virkjanasvæði

Um ON

Frétt

·

Sep 30, 2024

98 hleðslustöðvar ON væntanlegar í Kópavog

98 hleðslustöðvar ON væntanlegar í Kópavog

Hleðslustöðvar Orku náttúrunnar við Hálsatorg í Hamraborg voru teknar í notkun í vikunni og eru þær fyrstu af 98 hleðslustöðvum á 14 stöðum í Kópavogsbæ sem verða settar upp í haust.

Orka náttúrunnar og Kópavogsbær undirrituðu samning um uppsetningu og rekstur hleðslustöðva fyrir rafbíla á fjórtán stöðum í Kópavogi í kjölfar útboðs. Með þessu er sveitarfélagið að gera íbúum Kópavogs kleift að skipta áhyggjulaust yfir í rafbíl og mæta eftirspurn sem er nú þegar til staðar.

Gríðarleg fjölgun tengja á landinu

Hverfahleðslur ON er mikilvægur þáttur í orkuskiptum í samgöngum og með nýjum vegvísi stjórnvalda er settur kraftur í þá átt að eingöngu hreinorkubílar sem nýta innlenda, umhverfisvæna orku verði fluttir inn til landsins.

Á næstu vikum verða sett upp 98 tengi í Kópavogi á 14 staðsetningum, m.a. við skóla, sundlaugar og bókasöfn og munu þau því nýtast Kópavogsbúum og öðrum rafbílanotendum vel á meðan skroppið er til dæmis í sund eða á bókasafnið. Nú þegar eru komin upp tengi við Fífuna, Fagralund, sundlaug Kópavogs og Hálsatorg. Með þessari fjölgun eru Hverfahleðslutengi ON á landinu öllu orðin um 650 og gerir ON ráð fyrir að Kópavogsbúar geti hlaðið rafhlöðurnar á öllum nýju staðsetningunum í október.

Mikil ánægja með samstarfið

„Þetta er mjög ánægjulegur áfangi hjá Kópavogsbæ enda er gott aðgengi að hleðslustöðvun ein af forsendum rafbílavæðingar. Við höfum fundið fyrir aukinni eftirspurn eftir hleðslustöðvum, í takt við fjölgun rafbíla og ánægjulegt að geta brugðist við því og auðveldað Kópavogsbúum og öðrum skiptin yfir í rafbíla,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri.

„Það er ánægjulegt fyrir okkur hjá Orku náttúrunnar að hefja þetta samstarf við Kópavogsbæ enda Hverfahleðslur ON mikilvægur hlekkur í öflugu hleðsluneti okkar um land allt. Markmið ON er að tryggja öruggt aðgengi að rafmagni hvort sem er heima eða á ferðinni, sem og öruggt aðgengi fyrir öll að hleðslustöðvum okkar. Með samstarfinu höldum við áfram vegferð okkar í uppbyggingu innviða fyrir rafbíla þar sem við höfum stolt verið í fararbroddi síðustu 10 ár,“ segir Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar.

Samstarf Kópavogsbæjar og ON er liður í því að tryggja sjálfbæra framtíð með uppbyggingu öflugra og notendavænna innviða með grænni orku frá náttúrunni.


Vertu með á fréttabréfinu okkar

Fáðu nýjustu fréttir, uppfærslur og sértilboð beint í pósthólfið þitt!

Vertu með á fréttabréfinu okkar

Fáðu nýjustu fréttir, uppfærslur og sértilboð beint í pósthólfið þitt!

Vertu með á fréttabréfinu okkar

Fáðu nýjustu fréttir, uppfærslur og sértilboð beint í pósthólfið þitt!

Vertu með á fréttabréfinu okkar

Fáðu nýjustu fréttir, uppfærslur og sértilboð beint í pósthólfið þitt!

Vertu með á fréttabréfinu okkar

Fáðu nýjustu fréttir, uppfærslur og sértilboð beint í pósthólfið þitt!