Heimilið

Hleðsla

Fyrirtæki

Virkjanasvæði

Um ON

Sniðug orkusparnaðarráð fyrir þig og náttúruna

Við hvetjum viðskiptavini okkar til að nýta betur og nota minna því við getum raunverulega haft áhrif á notkun okkar og rafmagnskostnað. Hér eru nokkur góð ráð sem vert er að hafa á bak við eyrað því þau eru öll ótrúlega einföld.

Höldum kuldanum á réttum stað

Með því að þrífa reglulega þéttilistann á ísskápnum heldurðu kuldanum betur inni og sparar þannig rafmagn.

Blandarinn

Því smærri bitar sem settir eru í blandarann, því skemmri tíma tekur að blanda. Þannig má spara orku.

Þurrkarinn

Ef þú setur þurrt og hrjúft handklæði með blautum þvotti inn í þurrkarann tekur styttri tíma að þurrka þvottinn auk þess sem þurra handklæðið verður mjúkt.

Slökkvum ljósin og notum LED

Það er gamall og góður vani að slökkva á ljósunum á eftir sér – margt smátt gerir eitt stórt í þessum efnum eins og öðrum.

Reynum að skipta sem flestum perum á heimilunu yfir í LED perur.

Fjöltengi

Tæki taka rafmagn þó þau sé sett í biðstöðu. Slökktu alveg á þeim með því að taka þau úr sambandi eða notaðu fjöltengi með rofa sem hægt er að slökkva á.

Fallegasta birtan er dagsbirtan

Það er gott ráð að nýta dagsbirtuna og slökkva ljósin þegar tækifæri gefst. Dagsbirtan er nefnilega alltaf fallegust.

Tökum úr sambandi

Það er kjörið að taka farsíma og önnur hleðslutæki úr sambandi að lokinni hleðslu. Bæði sparar það rafmagnsnotkun og eykur líftíma batterísins.

Rafbíllinn hlaðinn á nóttunni

Það gæti verið snjallt að hlaða rafbílinn þinn á nóttunni þegar minna álag er á raforkukerfinu öllu. Þannig dreifir þú álaginu. Flestir rafmagnsbílar bjóða upp á það að stilla tímann þegar hleðsla á að hefjast.

Setjum lokið á

Með því að skella loki á pottinn þegar þú eldar sparast mikið rafmagn því það styttir eldunartímann.

Lækkum hitann

Þegar þú þværð við 60° í stað 90° minnkar rafmagnsnotkun um helming. Oftast er það nægur hiti til að skila þvottinum tandurhreinum.

Slepptu þurrkaranum af og til

Skelltu þvottinum í þurrkarann í 5-10 mínútur og hengdu síðan á þvottagrindina. Þannig verður þvotturinn eins og nýstraujaður þegar hann er orðinn þurr.

Öll velkomin til ON

Við hvetjum þig til að taka upplýsta ákvörðun við val á raforkusala. Okkar hjartans mál eru umhverfismálin og leggjum við áherslu á að fara vel með orkuna, nýta betur og nota minna því það kemur alltaf lang best út bæði fyrir þig og umhverfið.