News
•
Mar 19, 2024
Við prófanir á búnaði í lokumannvirki inntakslóns Andakílsárvirkjunar í morgun bilaði búnaður fyrir aðrennslispípu vélar 3. Engin slys urðu á fólki en afleiðingar bilunarinnar eru að pípan rofnaði á stuttum kafla upp við lokumannvirkið. Vél 3 er því ótiltæk þangað til viðgerð hefur farið fram. Búið er að tryggja vettvang og unnið er að frekari greiningu á atvikinu. Viðskiptavinir Orku náttúrunnar ættu ekki að verða fyrir áhrifum af biluninni.