
Við kveðjum Baulu með söknuði
Við höfum nú kvatt okkar vinsælu hraðhleðslustöðvar við Baulu, þar sem samstarfi okkar við Orkuna er að ljúka. Viðskiptavinir þurfa þó ekki að hafa áhyggjur, því nægar hraðhleðslustöðvar eru í næsta nágrenni.
Í Víðigerði bjóðum við upp á glæsilega hleðsluaðstöðu með átta tengjum, og við Skjálfta í Reykholti eru fjögur tengi í boði. Í Borgarnesi hefur nýr og glæsilegur hleðslugarður verið tekinn í notkun með 14 tengjum, og hlaut hann nýlega umhverfisverðlaun Borgarbyggðar fyrir snyrtilegustu atvinnulóðina.
Við hleðslugarðinn okkar í Borgarnesi geta rafbílaeigendur notið framúrskarandi aðstöðu með fjölbreyttri afþreyingu og þjónustu í nágrenninu, svo sem matvöruverslun, veitingastöðum, bakaríi, ísbúð og fleiru. Hleðslugarðurinn sjálfur tekur vel á móti allri fjölskyldunni með aðstöðu eins og trampólíni, mylluspili og fleiri skemmtilegheitum svo allir geti notið hleðslustundarinnar.
Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.